top

 

 

Vinsamlega athugið, þessi síða er í vinnslu.

Í júlí mánuði 2002 tók Hárkollugerðin yfir umboðssölu á Monsoon snyrtivörum.

Monsoon snyrtivörurnar eru hannaðar af íslenskri konu sem heitir Þorbjörg Doddy Bache, en er þekkt undir nafninu Doddý. Hún býr í Kaupmannahöfn, og rekur fyrirtæki sitt þaðan. Doddý hefur starfað með öll þekktustu snyrtivörumerkin, en þar sem hún hefur sjálf óþol fyrir ýmsum efnum sem notuð eru í mörgum snyrtivörum, ákvað hún að skapa sína eigin línu. Monsoon er litalína, augnskuggar, augnblýjantar, olíulaus fljótandi farði, púður farði, varalitir, laust púður, augnhára brettari, yddari, plokkari, varablýjantar, varagloss, maskarar og baugahyljarar, snyrtibuddur, penslar svo eitthvað sé nefnt. Litalínan einkennist af sérstaklega fallegum náttúrulegum litatónum, sem veita endalausa möguleika til að breyta andlistförðuninni.

Monsoon snyrtivörurnar fást eingöngu hjá Hárkollugerðinni.

 

Vertu þinn eigin farðari

Hárkollugerðin mun í vetur bjóða upp á námskeið þar sem konur fá leiðsögn um hvernig þær geta farðað sig sjálfar og breytt förðuninni á einfaldan hátt, einnig hvernig hægt er að nota hárfylgihluti til að auðvelda breytingu á hárgreiðslunni með lítilli fyrirhöfn. Bjóðum hópa sem einstaklinga velkomna.

Atvinnurekendur sérstök fyrirtækjanámskeið: Við tökum á móti starfsfólkinu ykkar og leggjum förðunarlínuna í vinnunni. Komum einnig út á land.

 

| athugasemdir sendist til vefstjóra | | kolfinna@harkollugerd.is | | uppfært í júlí 2007 |
| HKK Hárkollugerð Kolfinnu Knútsóttur ehf - Skólavörðustíg 8, 2 hæð - 101 Reykjvavík - sími 511 5222 - fax 511 5220 |