Bergmann
hárkollufyrirtækið er starfrækt í suður
Þýskalandi og hefur verið starfandi í 125
ár. Fyrirtækið framleiðir sitt eigið gervihár,
sjampó, hárspray og önnur efni sem eru sérstaklega
ætluð þessu hári til að viðhalda ferskleika
þess. Þetta fyrirtæki býður upp á
frábærar nýjungar og lausnir til þeirra
sem eiga við vandamál að stríða s.s. hárlos,
hármissi, blettaskalla og þess háttar vandamál.
Þetta eru lausnir á við einstaklega léttar
og fallegar hárkollur, hártoppa fyrir konur og karla
ásamt öðrum lausnum. Hárkollugerðinni er
mikill heiður að fá að bjóða upp á
eins fallega framleiðslu og Bergmann fyrirtækið framleiðir.
Hvernig
þvo á hárkollur og hártoppa
Þvottaleiðbeiningar:
Þar
sem Bergmann hárkollufyrirtækið framleiðir hárvörur
sérstaklega ætlaðar hárkollum til að viðhalda
ferskleika hársins hvort heldur er ekta hár eða
gervihár, ráðleggjum við viðskiptavinum
okkar eindregið að meðhöndla hárið með
þessum vörum.
-
setja
ylvolgt vatn í vask og blanda sjampói í vatnið.
Ath. að vatnið sé ekki of heitt.
-
láta hárkolluna vera í vatninu í ca
5-10 mínútur, ath að öll hárkollan
blotni vel.
-
skola hárkolluna vel, og setja hana aftur í ylvolgt
vatn með balsami (hárnæringu) og láta
liggja i ca 5-10 mín.
-
þurrka
mesta vatnið úr hárkollunni með því
að strjúka vatnið úr með höndunum.
Leggja hárkolluna á handklæði og vefja
handklæðinu utan um, klípa handklæðið
varlega - ekki vinda.
-
setja hárkolluna á hárkollustand og greiða
hana raka í það form sem óskað er.
Hárkollan er tilbúin til notkunar þegar hún
þornar. Við ráðleggjum að nota grófa
greiðu eða grófan bursta.
-
ef hárkollan er þurrkuð með hárblásara
má alls ekki nota heitan blástur, og ráðleggjum
við viðskiptavinum okkar að nota LIFE spray sem verndar
hárið fyrir hita.
ath.
fyrir þá sem nota lím, hreinsið límið
af fyrir þvott.