top

Fyrirtækið og starfsfólkið

Fyrirtækið

Fyrirtækið var stofnað í júní árið 1999. Það hóf starfsemi sína á Impru Frumkvöðlasetri Iðntæknistofnunar. Núna er fyrirtækið starfrækt að Skólavörðustíg 8, 2 hæð, gengið er inn bakdyramegin.

Áhersla er lögð á að þjónusta þá sem af einhverjum ástæðum missa hárið með hárkollur, hártoppa og höfuðföt svo eitthvað sé nefnt.

Markmið fyrirtækisins er að fylgjast vel með nýjungum sem eiga sér stað í framleiðslu og þjónustu erlendis til að geta boðið upp á bestu fáanlega vöru hverju sinni.

Leikhús, kvikmynda- og auglýsingafyrirtæki geta leitað til Hárkollugerðarinnar og leigt hárkollur, skegg, barta o.s.fr. til gervahönnunar. Þetta er nýjung á Íslandi og vonum við að sem flestir geti nýtt sér.

Einnig geta fyrirtæki og félagasamtök leitað til fyrirtækisins með gervahönnun og hárkolluleigu hvað varðar skemmitatriði á t.d. árshátíðum, þorrablótum eða öðrum uppákomum fyrirtækja eða félagasamtaka.

Allar upplýsingar eru veitta í síma 511 522

     

     
Kolfinna Knútsdóttir
sem er farðara og hárkollugerðar menntuð, er stofnandi fyrirtækisins. Hún hefur verið starfandi við fagið síðan árið 1985 er hún lauk námi frá Complection London School of make up. Hún hefur auk þess starfað hjá Þjóðleikhúsinu í 11 ár, unnið ýmis lausastörf við förðun og hárkollugerð s.s. við sjónvarp, auglýsingar bæði blaða og sjónvarps, við heimildarþætti, kvikmyndir, kennslu ásamt fl. Hún hefur sótt námskeið og kynningar erlendis.
     

 
     
     
| athugasemdir sendist til vefstjóra | kolfinna@harkollugerd.is | uppfært í júlí 2007 |
| HKK Hárkollugerð Kolfinnu Knútsóttur ehf - Skólavörðustíg 8, 2 hæð - 101 Reykjvavík - sími 511 5222 - fax 511 5220 |